Monday, January 31, 2011

Lindsey Wixon!


Það munu örugglega koma ófáar færslur frá mér um Lindsey. Biðst afsökunar fyrirfram. Fæ ekki nóg af henni, fegurð hennar er svo skemmtileg. Hún er með þetta 50´s-60´s siren look, very vintage. POUT-ið hennar er líka beyond.

Love.

Mjá




Ég læt hugljúft lag með Carla Bruni fylgja með.



-B

Smá gamanmál..

Ég vil trúa þessu..

Hmmm..

Híhíhíhí..

Ég held að það sé frelsandi.

Hohoho..


Ég trúi því að hlátur lengi lífið og sé best geymda fegurðarleyndarmálið..

-B

Gleði fyrir augað.





-B

Friday, January 28, 2011

Hér eru Draumar-Um Drauma-Frá Draumum-Til Drauma.

Einn daginn get ég leyft mér þann munað að ráða hinum ýmsu smáatriðum heimilisins þegar loksins ég kveð leigumarkaðinn. En þangað til deili ég draumum mínum með ykkur.

Nú dreymir mig um fallega vaska..


Ripple eru rafsegulmagnaðir vaskar þar sem hitinn stjórnast af því hvorum megin kúlan er og litur breytist eftir því hvort heitt eða kalt renni. Alls ekki sniðugt fyrir litla putta...en mjög svo kúl!


Þessi er bæði retró og nýmóðins.

Mjög skemmtilegt hvernig leikið er með flæðið hérr.

Stílhreint.

Þessi gleður listræn augu.

Rómantískur.

Finnst þessi alveg skuggalega flottur, þar sem vatnið rennur meðfram hringnum.
Einfaldur en mjög fallegur.

Skemmtilegt.

Eeeeelska þessa útfærslu af fiskabúri.

-B

Sweet Sweet Lips!


Ég er að elska að sjá hvert förðun fyrir vor/sumar 2011 er að stefna. Fjölbreytnin er svo mikil að sérhver kona getur fundið e-ð fyrir sína húðtegund hvort sem hún er fyrir drama eða vill bara fallega náttúrulega förðun. 
En það má segjast að varir séu í suðupottinum. Mattar, rauðar, neon, glossaðar, nude..o.s.f.r.v.. VARIR, VARIR, VARIR! Ég ætla að taka þátt í þessu varabrjálæði þó ég hafi ekki verið mikið fyrir það hingað til þar sem ég hef meira verið að flassa augunum.
Augnförðunin verður með svipuðu formi og hún hefur verið, smokey og nude, en við bætast þó þessir 50´s 60´s möttu litir þar sem einn litur er notaður á allt augnlokið eins og við sjáum hjá Dior. Einnig hef ég verið að sjá hvítar augnlínur sem ég held að eigi eftir að læðast eilítið inn fyrir. 
Annars finnst mér förðunin ávallt fallegri ef húðin er vel undirbúin, myndi enginn listamaður byrja að mála á skítugann striga. Svo hugsið vel um grunninn áður en farið er að framkvæma meira girls. 

Bara spennandi tímar. whoop whoop!

ARMANI

D&G


DIOR

FENDI

GUCCI

JIL SANDERS

LOUIS VUITTON
CHANEL

DIOR

DEREK LAM

DIANE VON FURSTENBERG

GIANFRANCO FERRE


YVES SAINT LAURENT

VIKTOR & ROLF


-B

Monday, January 24, 2011

Maria Yasko.

Ég fyllist svo miklu stolti þegar ég er að browsa á erlendum design bloggum og finn að erlendir hönnuðir hafa fengið innblástur frá stórasta landi í heimi, Íslandi.

Hér hefur rússneski hönnuðurinn Maria Yasko hannað skemmtilegar hillur  sem ekki bara er gerðar til hirslunota heldur líka til að gleðja augað.

Fallega Ísland.


Love.



Hér fékk hún svo verkefni að hanna fjölskylduvænt svæði. Innblástur hennar af þessum svæðum kemur frá múmínálfa sögunum sem skrifuð er af finnska rithöfundinum Tove Jansson. Hérna lifnar múmíndalurinn við og verður að þessu ævintýralega fjölskyldu afdrepi.

Þarna er Mía litla að fljúga á regnhlífinni.

Stílhreint en líka ævintýralegt.

-B


Friday, January 21, 2011

Colourblind!

Falleg outfit. Fallegt make up. Shooees. Litir. Love.








photography: Lazar
styling: Huben Hubenov
hair and makeup: Slav
model: Gia @ Ivet


PUBLISHED IN GIA MAGAZINE ISSUE ONE NOVEMBER 2010


Fer inní helgina með Alex Winston..



Gleðilega helgi people..

-B

Elsku kynsystur..

Þegar ég var fátækur námsmaður í London uppgötvaði ég ýmsar góðar snyrtivörur á mjög námsmannavænu verði (ásamt því að þróa núðlusúpur). 

Natural Collection "ShineAway Foundation" er ein af þessum vörum sem ég lofa. Ég er með þessa típísku blönduðu húð, fæ þurrku bletti en líka bólur, og hentar þessi farði einstaklega vel fyrir mína húð. Silkimjúkur, léttur og eins og nafnið gefur til kynna,"shine away", þá dregur hann úr glansinum sem svo margir farðar auka. Algjör snilld og wait for it..aðeins 1.99 pund í Boots. Þannig ef þið eigið leið um Bretland þá endilega athugið þessa snilld.

Þessi dúlla er svo með ýtarlegri umfjöllun um línuna.



Vona að þið getið kynnst þessum farða og notið eins og ég hef. Buddan mín elskar hann allavega. :)

-B

Wednesday, January 19, 2011

Hoppandi glaður!

Finnst þetta svo fallegur myndaþáttur að ég verð að deila honum með ykkur.

ABSOLUT MAX for Pref Magazine






By: Ferran Casanova

-B