Ég er að elska að sjá hvert förðun fyrir vor/sumar 2011 er að stefna. Fjölbreytnin er svo mikil að sérhver kona getur fundið e-ð fyrir sína húðtegund hvort sem hún er fyrir drama eða vill bara fallega náttúrulega förðun.
En það má segjast að varir séu í suðupottinum. Mattar, rauðar, neon, glossaðar, nude..o.s.f.r.v.. VARIR, VARIR, VARIR! Ég ætla að taka þátt í þessu varabrjálæði þó ég hafi ekki verið mikið fyrir það hingað til þar sem ég hef meira verið að flassa augunum.
Augnförðunin verður með svipuðu formi og hún hefur verið, smokey og nude, en við bætast þó þessir 50´s 60´s möttu litir þar sem einn litur er notaður á allt augnlokið eins og við sjáum hjá Dior. Einnig hef ég verið að sjá hvítar augnlínur sem ég held að eigi eftir að læðast eilítið inn fyrir.
Annars finnst mér förðunin ávallt fallegri ef húðin er vel undirbúin, myndi enginn listamaður byrja að mála á skítugann striga. Svo hugsið vel um grunninn áður en farið er að framkvæma meira girls.
No comments:
Post a Comment