Ég var að komast í kynni við nýjustu sjampólínu Sebastian og finnst það einum of gott leyndó til að sitja á því ein. Þessi vara er allt það sem ég hef leitað að í fari sjampós og næringar og ég hef prufað margt.
SEBASTIAN HYDRE er eins og nafnið gefur til kynna mjög rakagefandi lína sem er gott fyrir okkur valkyrjur sem þurfum að þola miklar veðurbreytingar. Ég er með þetta típíska frissy hálf liðaða hár sem þarf mikla umönnun. Forðaðist algjörlega hárblásarann því það gerði bara illt verra en eftir að ég byrjaði að nota Sebastin hydre hefur það loksins gefið eftir og gjörsamlega fellur niður (á góðan hátt) þegar ég blæs það, þarf varla að grípa í sléttarann ef ég vill það lúkk. Það sem mér finnst þó BEST er að það helst alveg hreint í ca 4 daga og lýtur bara mjög vel út með fyllingu, shine og svona hárgreiðslustofulykt. Svo mun jú tíminn leiða í ljós hvort það heldur sinni virkni áfram, en ég hef notað það núna í ca mánuð.
Myndi gefa þessari vöru 9,5 af 10 möguleikum :)
-B























































