Friday, January 21, 2011

Elsku kynsystur..

Þegar ég var fátækur námsmaður í London uppgötvaði ég ýmsar góðar snyrtivörur á mjög námsmannavænu verði (ásamt því að þróa núðlusúpur). 

Natural Collection "ShineAway Foundation" er ein af þessum vörum sem ég lofa. Ég er með þessa típísku blönduðu húð, fæ þurrku bletti en líka bólur, og hentar þessi farði einstaklega vel fyrir mína húð. Silkimjúkur, léttur og eins og nafnið gefur til kynna,"shine away", þá dregur hann úr glansinum sem svo margir farðar auka. Algjör snilld og wait for it..aðeins 1.99 pund í Boots. Þannig ef þið eigið leið um Bretland þá endilega athugið þessa snilld.

Þessi dúlla er svo með ýtarlegri umfjöllun um línuna.



Vona að þið getið kynnst þessum farða og notið eins og ég hef. Buddan mín elskar hann allavega. :)

-B

No comments: