M-Magazine nr 15 er komið út!
Þetta fallega einstaka tímarit kemur aðeins út tvisvar á ári og alltaf er ég jafn spennt þegar ég fæ að bera það augum. Það er algjört konfekt fyrir augað og ekki er það af verri endanum núna því nú fá litir að vera í sviðsljósinu! Nammi..
![]() |
| PIXEL |
Pixel heitir línan sem Make up store gefur út núna fyrir sumarið. Það sem einkennir þessa línu eru skemmtileg form og litir, appelsínugulur, grænn og gulur, í framtíðarsýnarformi.
Kitlar eflaust marga make-up artista í fingurna að komast í þessar vörur.
Vei. Ég er allavega ein af þeim.
Hér er svo tímaritið online en fyrir þá sem vilja koma höndum á það þá kemur það út í Make up store 18. mars.
Hér eru svo nokkrar vörur sem mér langar í frá Pixel.
![]() |
| Þessi er svo mikið bjútí! |
![]() |
| Mjög seiðandi.. |
![]() |
| Hef aldrei notað svona lit en langar að prufa. |
![]() |
| Namm.. |
![]() | |
| Þessi verður góður fyrir sumarið með smá sunkissed skin. |
Læt svo að sjálfsögðu eitt eitrað fylgja með.
-B







No comments:
Post a Comment