Clingstone er óvenjulegt 103 ára gamallt hús í eigu Henry Wood, 79 ára arkitekt frá Boston. Það óvenjulega við húsið er að það er staðsett á pínu lítilli eyju rétt utan Rhode Island við Narragansett höfn. Húsið er hannað af J.S. Lovering Wharto samhliða listamanninum William Trost Richards en þeir ákváðu að sérhver gluggi myndi sýna vissa mynd frá listrænu sjónarhorni.
Mér finnst þetta hús alveg hafa sjarma fyrir allann pakkann. Svo myndrænt hús. Veit ekki alveg hvort ég myndi vilja búa þarna, fullmikil einangrun fyrir malbik eins og mig, en ég myndi alveg sjá það fyrir mér sem sumarhús. Í long john náttfötum með heitt kakó við arineldinn að hlusta á nið sjósins með elskuhuganum..
...mmmmmm.
Falleg húsgögn með sogu.
Finnst þetta sjónarhorn fullkomið.
Bara lítil sæt skúta í bakgarðinum.
Get ýmindað mér að það sé gaman að vera þarna sem krakki.
love.
Afi, fyrrum sjómaður, myndi prýða sig sælann þarna í skipstjóraleik.
No comments:
Post a Comment