Tuesday, January 18, 2011

Leitin mikla að náttborði!

Nú hef ég verið að leita að hinu fullkomna náttborði í ár (og aldir) og hef komist að þeirri niðurstöðu að það mun ekki koma á silfurfati til mín. Búin að banna greyið kærastanum mínum að fara í IKEA til að ná sér í náttborð því að ég muni sjá um þau mál (meira en hálft ár síðan). Náttborðin okkar einkennast af skrifborðstól, hjá herranum, og kolli, hjá dömunni. Nú er komið að því, leitin hefst. Hér hef ég fundið nokkrar skemmtilegar hugmyndir sem gætu komið mér á sporið.

Þetta borð er fallegt, stílhreint og hugsanlega hægt að framkvæma sjálfur, með smá hjálp.

Þetta borð myndi gleðja kisa minn, veit ekki alveg með kæró. hihi.
Þessi útfærsla á aðeins snyrtilegir máta, lóðrétt, kannski búið að mála myndi henta mér ágætlega þar sem kreppa er við völd.
Auðvelt í uppsetningu og fyriferðarlítið.
Bjútifúl. Þá sérstaklega veggfóðrið.
Kemur sér vel fyrir lestrahesta. Simple.


Algjör snilld. Gæti hugsanlega farið í geymsluna til ömmu og fundið eina svona. Kannski ekki hentugt upp á geymslu plássið að gera. En fallegt.
Mega girly. Fallegir fætur.


Þetta finnst mér best. Ótrúlega rómó. Alveg geranlegt. http://www.cucumbersome.com/there-will-be-tables-and-chairs/
Ég er dáldill newby þegar kemur að nátborðum þar sem ég hef haft hálfgert ofnæmi fyrir þeim. Finnst þau taka of mikið pláss. Hef heldur ekki fundið neitt fallegt hingað til en þegar maður verður stór þá fylgja ýmsir hlutir með í rúmið t.d. bækur, úr, gleraugu, eplatölvan mín og fl.. Þetta dót þarf víst sinn stað.
Ætla að henda inn færslu þegar ég er komin með skemmtilega útfærslu á þessu "vandamáli".

-B

No comments: